Nýja heimasíðan okkar er í vinnslu sem stendur.

Allar fyrirspurnir er hægt að senda á onnuson@onnuson.is
————————————————————————-
Our Website is Currently Under Construction.

In the meantime, feel free to reach out to us with any questions or inquiries at onnuson@onnuson.is. We’re here to assist you with any information you may need.

Vörumerki

Wermlands Choklad

Wermlands Choklad
Wermlands Choklad var stofnað árið 2014 í Värmlandi í Svíþjóð og framleiðir lífrænt ræktað hrásúkkulaði og súkkulaði trufflur unnar úr hágæða kakóbaunum frá Ekvador.
Súkkulaðið er lífrænt ræktað og laust við alla helstu ofnæmisvalda á borð við hnetur, soja, glúten, mjólkur- og dýraafurðir og hentar því einstaklega vel fyrir lang flesta.

Einkunnarorð Wermlands Choklad eru TREE TO BAR sem endurspeglar ferlið sem á sér stað og þá stjórn sem þeir hafa á ferlinu alveg frá því að kakó trénu er plantað í Ekvador og þangað til neytandinn kaupir súkkulaðið út í búð.  

Hvað er hrásúkkulaði? 
Hrásúkkulaði (en. raw chocolate) er búið að vinna og hita minna heldur en hið hefðbundna súkkulaði. Með því að vinna súkkulaðið sem minnst haldast næringarefni og vítamín betur í súkkulaðinu og þar með verður súkkulaðið næringaríkara. 
Dæmi um efni sem haldast betur í súkkulaðinu eru andoxunarefni, magnesíum, járn, kalíum og trefjar.

Engir óþörf aukaefni og ofnæmisvalda
Nútíma matvæli innihalda oft fölmörg innihaldsefni sem finnast ekki í náttúrunni. Það á þó ekki við Wermlands Choklad. Vörurnar þeirra innihalda alltaf eins fá hráefni og mögulegt er, sem að auki hafa verið meðhöndluð eins lítið og hægt er. Þar af leiðandi verða vörurnar eins hreinar og náttúrulegar og hægt er að bjóða uppá.
Sem dæmi inniheldur hreina súkkulaðiplatan frá Wermlands Choklad eingöngu hreint kakó og kókospálmasykur, engin aukaefni.
Enginn hvítur sykur er í vörum frá Wermalnds Choklad en sem sætu nota þeir kókospálma sykur í súkkulaði plöturnar og hrásykur í trufflurnar.

Bændurnir í Ekvador
Leons fjölskyldan í Ekvador sér um ræktun á kakói fyrir Wermlands choklad á bænum þeirra Santa Teresa rétt fyrir utan smábæinn Patricia Pilar í Ekvador. Frá árinu 2020 hefur Leon fjölskyldan verið hluti af eigendahópi Wermlands Choklad og veitir aðkoma fölskyldunnar trygga stjórn á framleiðsluferlinu allt frá ræktun kakóplöntunnar og alveg þar til þú færð í hendurnar gæða vöru sem er ræktuð og framleidd með hagsmuni þína, umhverfisins og samfélagsins í huga.

Starfsfólk Leons, sem vinnur á ekrunni býr við gott atlæti, bæði varðandi vinnutíma, vinnu aðstæður og laun. Kakóið á búinu er allt lífrænt ræktað sem þýðir að starfsmenn búsins þurfa hvorki að meðhöndla eiturefni eða komast í snertingu við þau í vinunni.

TREE TO BAR!